Bakaðar kartöflur í hvítlauks parmesanhjúp

Hráefni:

  • 7 – 8 meðalstórar bökunarkartöflur
  • 4 msk bráðið smjör
  • 2 1/2 dl rifinn parmesan
  • 1/2 tsk svartur pipar
  • 1 msk rifinn hvítlaukur
  • 1 msk paprika
  • 1 tsk salt
  • 1 tsk ítalskt krydd
  • söxuð fersk steinselja til skrauts, má sleppa

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 200 gráður.

2. Skerið sléttan skurð neðan af kartöflunum svo þær standi vel. Raðið þeim í eldfast mót. Skerið næst djúpar rifur í gegnum þær en þó ekki alla leið í gegn. Penslið þær vel með smjöri, vel ofan í rifurnar.

3. Blandið saman í skál parmesanosti, svörtum pipar, hvítlauk, papriku, salti og ítölsku kryddi. Dreifið næst blöndunni yfir kartöflurnar, og vel ofan í rifurnar. Bakið þetta í ofninum í um 40 – 60 mín eða þar til þær eru orðnar fallega gylltar og eldaðar í gegn. Toppið með rifnum parmesan og ferskri steinselju.

Auglýsing

læk

Instagram