Bökuð egg með ricotta og timjan

Hráefni:

  • 4 msk ólívuolía
  • 1 dl ricotta ostur
  • 1 hvítlauksgeiri, rifinn niður
  • 1-2 msk ferskt timjan
  • 1 tsk rifinn sítrónubörkur
  • 1 tsk söxuð fersk steinselja
  • 1 dl saxað ferskt grænkál
  • 4 egg
  • sjávarsalt
  • 1/4 tsk svartur pipar
  • 1/8 tsk rauðar chilliflögur

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 180 gráður og smyrjið tvö lítil eldföst form með ólívuolíu.

2. Hrærið saman í skál 2 msk ólívuolíu, ricotta ost, hvítlauk, timjan, sítrónubörk, steinselju og grænkál.

3. Hellið blöndunni jafnt á milli í formin. Brjótið næst 2 egg yfir blönduna í hvort form. Toppið eggin með smá ólívuolíu, salti, pipar og chilliflögum.

4. Bakið í 12-15 mín. Berið fram strax með ristuðu brauði.

Auglýsing

læk

Instagram