Hægeldaður nautapottréttur sem kitlar bragðlaukana!

Hráefni:

  • 1 kg nautakjöt skorið í 5 cm bita
  • 2 msk ólívuolía
  • salt og pipar eftir smekk
  • 1 laukur, skorinn smátt
  • 2 stórar gulrætur, skornar smátt
  • 2 lárviðarlauf
  • 4 hvítlauksgeirar, rifnir niður
  • 2 msk tómatpúrra
  • 3 msk smjör
  • 1 pakki sveppir, skornir í sneiðar
  • 5 dl rauðvín
  • 3 stilkar ferskt timjan

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 180 gráður.

2. Kryddið kjötið rausnarlega með salti og pipar. Hitið olíu á pönnu eða í potti (sem má fara inn í ofn) Steikið kjötið þar til það brúnast, c.a. 2 mín á hvorri hlið. Takið það af pönnunni og leggið til hliðar á disk eða fat.

3. Lækkið aðeins hitann á pönnunni bætið lauk, gulrótum og lárviðarlaufum á hana. Steikið þetta þar til grænmetið fer að mýkjast eða í um 5 mín. Bætið þá hvítlauknum saman við og steikið áfram í 2 mín. Hrærið þá tómatpúrru saman við grænmetið ásamt hveitinu, rauðvíni og sveppum. Leyfið þessu að malla stutta stund.

4. Raðið kjötinu á pönnuna, yfir grænmetið, og þrýstið timjan-greinum á milli. Setjið lok á pönnuna/pottinn og inn í ofn í 2 1/“-3 klst. Berið fram með heimalagaðri kartöflustöppu.

Auglýsing

læk

Instagram