today-is-a-good-day

Ljúffengir og bragðmiklir kartöflubitar með hvítlauk og chilli

Hráefni:

  • 8 meðalstórar afhýddar (má líka hafa hýðið á) kartöflur skornar í litla bita (
  • 2 msk ólívuolía
  • ½ tsk salt
  • 3 hvítlauksgeirar rifnir niður
  • 2 tsk chilli flögur
  • 2 dl saxað  ferskt kóríander
  • sítrónusneiðar

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 220 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu.

2. Dreifið kartöflubitunum á plötuna og dreifið 1 msk ólívuolíu yfir ásamt salti. Bakið í ofninum þar til kartöflurnar eru farnar að taka á sig gylltan lit eða í um 30 mín. Gott er að snúa þeim við þegar tíminn er hálfnaður.

3. Á meðan kartöflurnar eru í ofninum eru 1 msk ólívuolía hituð á lítilli pönnu. Setjið hvítlauk, 1 tsk chilli flögur og helminginn af kóríander á pönnuna og steikið þetta í um 2 mín. Takið af pönnunni og leggið til hliðar.

4. Þegar kartöflurnar koma úr ofninum er hvítlauks-blöndunni dreift yfir kartöflurnar ásamt restinni af chilli flögunum og kóríander. Berið fram heitt með sítrónusneiðum sem má kreista yfir kartöflurnar ef maður vill.

Auglýsing

læk

Instagram