today-is-a-good-day

Stökkar ofnbakaðar kartöflur með hvítlauk og rósmarín

Hráefni:

  • 1 kg meðalstórar kartöflur
  • 6 msk brætt smjör
  • 1 msk saxað ferskt rósmarín, plús 3 stilkar
  • 4-6 hvítlauksgeirar, rifnir niður
  • sjávarsalt og svartur pipar

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 220 gráður.

2. Skerið djúpar rendur í kartöflurnar, þó ekki alveg í gegn. Raðið þeim í stórt eldfast mót ásamt smjöri, söxuðu rósmarín,hvítlauk, salti og pipar. Blandið þessu vel saman og látið rendurnar á kartöflunum snúa niður. Leggið rósmarín stilkana yfir kartöflurnar.

3. Setjið þetta inn í ofn í 20-25 mín. Takið þetta þá úr ofninum og snúið kartöflunum við. Setjið þetta aftur inn í ofninn í aðrar 20-25 mín eða þar til kartöflurnar eru orðnar stökkar og fallega gylltar.

4. Takið úr ofninum og kryddið þetta til með salti og pipar eftir smekk. Njótið.

Auglýsing

læk

Instagram