Auglýsing

Stökkir hjúpaðir kjúklingabitar með sætri chilli sósu

Hráefni:

  • 2 egg
  • 1 dl mjólk
  • 1 msk sriracha sósa
  • 3 dl kókosmjöl
  • 1 dl panko raspur
  • 1 tsk sjávarsalt
  • 1/2 tsk svartur pipar
  • 1/4 tsk cayenne pipar
  • 500 gr kjúklingabringur skornar í strimla eða heilar kjúklingalundir
  • grænmetisolía til steikingar
  • Sweet chilli sósa

Aðferð:

1. Hrærið saman egg, mjólk og sriracha sósu í skál. Leggið til hliðar.

2. Takið meðalstóran disk og blandið saman á hann kókosmjöl, panko rasp, salt, svartan pipar og cayenne pipar. Dýfið næst kjúklingnum í eggjablönduna og þar næst í kókosblönduna. Leggið kjúklinginn á fat. Gerið þetta við alla kjúklingabitana.

4. Takið meðalstóran pott og hellið í hann um 4 cm af grænmetisolíu. Hitið olíuna á miðlungshita þar til hún hefur náð slíkum hita að þegar þú leggur viðarsleif ofaní þá koma „búbblur“.

5. Steikið núna kjúklinginn í skömmtum, ekki of marga bita í einu ofan í pottinn. Steikið hvern bita í um 3-4 mín eða þar til þeir verða fallega gylltir og eldaðir í gegn. Leggið elduðu bitana á disk með eldhúspappír á, það þerrar alla umfram olíu af bitunum. Berið fram strax með sweet chilli sósu sem hægt er að dýfa bitunum í.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing