Æskuvinir rugla Bibba og Gunna saman: „Við erum ekki sami maðurinn!“

Tónlistarmaðurinn Snæbjörn Ragnarsson, best þekktur sem Bibbi í Skálmöld, og fréttamaðurinn Gunnar Reynir Valþórsson, sem er reyndar líka tónlistarmaður í hljómsveitinni Strigaskór nr. 42, eru ekki sami maðurinn. Og við getum sannað það. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Elísabet Inga, útsendari Nútímans, hitti Bibba og Gunna á dögunum og fékk að vita að meira að segja æskuvinir rugla þeim saman. Sárast fannst Gunna þegar Bibbi nappaði prófílmyndinni hans á Facebook, setti hana á síðuna sína og fékk að lokum fleiri læk. „Ég var með hana lengur en þú,“ segir Bibbi við Gunna.

Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan. Og horfðu svo aftur vegna þess að þeir eru tveir. Eða einn. Eða eitthvað.

Næst ▶️ Bergþór Pálsson kenndi okkur að borða framandi pitsur

Lækaðu Facebook-síðu Nútímans myndbanda og þú missir ekki af neinu!

Auglýsing

læk

Instagram