Bræddu hraun fyrir framan spennta fjárfesta: „Mér fannst þetta klárlega vekja athygli“

Hjónin Ragnhildur Ágústsdóttir og Júlíus Ingi Jónsson vinna því að setja upp sýninguna Icelandic Lava Show í Reykjavík þar sem hraun verður brætt og látið renna inn í sýningarsal og yfir ís.

Nútíminn hefur fylgst með þátttöku þeirra í Startup Reykjavík og nú er komið að fjórða þættinum sem er jafnframt lokaþátturinn. Horfðu á hann í spilaranum hér fyrir ofan.

  1. þáttur: „Það verður rennandi hraun í Reykjavík“
  2. þáttur: „Við bætum upp veikleika hvors annars og ýtum undir styrkleika hvors annars“
  3. þáttur: Magnað þegar hraun er brætt og látið renna yfir ís, sjáðu myndbandið

Hugmyndin var ein af tíu hugmyndum sem valdar voru til þátttöku í Startup Reykjavík í sumar. Í fjórða þættinum er heldur betur byrja að draga til tíðinda. Ragnhildur og Júlíus er mætt á Investor Day til að kynna hugmyndina og auðvita bræða hraun fyrir áhugasama fjárfesta.

Júlíus sá um að redda risavöxnum ísklumpi á meðan Ragnhildur undirbjó kynninguna. Bandaríski hraunsérfræðingurinn Robert Wysocki mætti til landsins og sá um að bræða hraunið.

Þættirnir eru framleiddir í samstarfi við Arion banka sem er eigandi tveggja viðskiptahraðla á Íslandi, Startup Reykjavík og Startup Energy Reykjavík. Arion banki hefur fjárfest í yfir 70 íslenskum sprotafyrirtækjum í gegnum viðskiptahraðlana tvo.

Hugmyndirnar í Startup Reykjavík eru afar fjölbreyttar — allt frá byltingarkenndum aðferðum við nýtingu á stofnfrumum til tölvuleikja og súkkulaðiframleiðslu. Kynntu þér málið á Startup Reykjavík.

Auglýsing

læk

Instagram