Hvernig á að þamba Hámark með nýja rörinu? Sjáðu myndbandið

Eftir að Hámark og fleiri drykkir voru settir í nýjar umbúðir hefur fólk lent í vandræðum með að þamba. Eftir æfingar er maður ekki beinlínis í stuði til að sötra prótínið og maður ræðst því á drykkinn og þambar á nokkrum sekúndum.

Rörið sem fylgir nýju umbúðunum hefur valdið einhverjum smá hugarangri og svona tíst hafa skotið upp kollinum.

Nútíminn er hins vegar búinn að finna lausn á þessu vandamáli, fyrir þau sem vilja þamba. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan og fáðu sannleikann beint í æð.

Athugaðu að við rukkuðum ekki Hámark fyrir að gera þetta myndband. Okkur fannst þetta bara sniðugt.

Auglýsing

læk

Instagram