Kynnti Tinder fyrir öldruðum stuðboltum í Reykjavík: „Þessi er svolítið að bera sig“

Við hittum nokkra reynslumikla stuðbolta á þjónustuheimili í Reykjavík og athuguðum hvort við séum nokkuð í ruglinu með allar þessar smakkanir á Nútímanum. Við erum búin að smakka hitt og þetta og nú er tími til að fara með það upp um þrep. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Piparnammi er í tísku núna þannig að Kristín Péturs, útsendari Nútímans, leyfði þeim að smakka piparhúðað Nóa Kropp og Turkish Pepper popp. Til að gera þetta áhugavert þá skellti hún wasabí hnetum með. Við smökkuðum ódýrasta bjórinn í Vínbúðunum í daginn og Kristín gaf þeim líka að smakka hann.

Og hún kynnti þau líka að sjálfsögðu fyrir Tinder. Aðeins til að krydda ástarlífið á þjónustuheimilinu. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Auglýsing

læk

Instagram