Myndband: Usher kenndi James Corden að dansa í nýju stórkostlegu bílakarókíi

Stórstjarnan Usher, var gestur spjallþáttastjórnandans James Corden í fasta liðnum Carpool Karaoke í þessari viku. James hitti Usher í Hollywood og þeir félagar renndu í gegnum ótrúlegt safn hans af smellum ásamt því að þrífa Hollywood-stjörnuna sem Usher á við Hollywood Boulevard.

Usher ákvað svo að kenna Corden hvernig hann ætti að haga sér inni á skemmtistað þar sem útkoman er hreint út sagt mögnuð. Sjón er sögu ríkari, horfðu á myndbandið í spilaranum hér að ofan. 

Auglýsing

læk

Instagram