Reykjavíkurdætur ritskoða eigið myndband og endurbirta á Youtube

Reykjavíkurdætur hafa birt myndband við lagið Reppa heiminn á Youtube á ný. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan. Myndbandið var fjarlægt af Youtube þar sem það þótti of gróft fyrir myndbandavefinn en Reykjavíkurdætur eru með ráð undir rifi hverju og ritskoðuðu myndbandið.

„Það er góð ástæða fyrir því að það þurfti að ritskoða þetta fallega myndband,“ segir í skilaboðum frá hljómsveitinni á Youtube.

Auglýsing

læk

Instagram