Snjólaug grillar Hugleik: „Hann er ekki með bílpróf af því að það er bannað að keyra bólufreðinn“

Eins og Nútíminn greindi frá í gær þá fékk Hugleikur Dagsson vini sína til að grilla sig á sviðinu á Rósenberg í tilefni af 39 ára afmæli sínu í október. Við höldum áfram að birta stutt brot úr grillinu þangað til á fimmtudaginn en þá birtum við kvöldið í heild.

Sjá einnig: Bylgja Babýlóns grillar Hugleik: „Enginn hugsar jafn mikið um útlitið og tekst það jafn illa“

Snjólaug Lúðvíksdóttir var á meðal þeirra sem grillaði Hugleik. Hún talaði mikið um kvennamál Hugleiks og furðaði sig á því að enginn væri búinn að tala um grasreykingar. „Hann er ekki með bílpróf af því að það er bannað að keyra bólufreðinn,“ sagði hún og uppskar mikinn hlátur.

Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Þau sem stigu einnig á svið voru Bylgja Babýlóns, Ari Eldjárn, Frímann Gunnarsson, Lóa Hjálmtýsdóttir, Þórdís Nadia Semichat, Ragnar Hansson og Katrín Erlings.

Fylgist svo með á fimmtudaginn!

Auglýsing

læk

Instagram