Spáði rétt fyrir um úrslit og markaskorara í leiknum gegn Portúgal, sjáðu myndbandið

Eins og alþjóð veit þá gerðu Ísland og Portúgal jafntefli á Evrópumótinu í fótbolta á þriðjudagskvöld. Nani skoraði mark Portúgals en Birkir Bjarnason skoraði mark Íslands.

Þetta vissi Hörður Sævar Óskarsson eins og myndbandið hér fyrir ofan sýnir. RÚV tók viðtal við hann á Ingólfstorgi áður en leikurinn hófst og hann var handviss um hvernig leikurinn myndi fara og hver ætti eftir að skora mörkin.

Nú er spurning hvort hann sé til í að gefa upp lottótölur helgarinnar?

Auglýsing

læk

Instagram