Þetta er uppáhalds augnablikið okkar úr fjölmiðlum eftir að Justin Bieber kom til landsins

Sannkallað Bieber-æði hefur ríkt á Íslandi frá því að Justin Bieber lenti á Reykjavíkurflugvelli í hádeginu á miðvikudaginn. Kappinn kom fram á tónleikum í Kórnum í Kópavogi í gær og stígur aftur á svið í kvöld.

Sjá einnig: Aðdáendur saka Justin Bieber um að mæma á tónleikunum í Kórnum

Áhugi almennings er gríðarlegur og fjölmiðlar hafa gefið fólkinu það sem það vill: Mjög margar fréttir af Justin Bieber. Nútíminn viðurkennir fúslega að Vísir.is hafi bakað aðra fjölmiðla þegar kemur umfjöllun um komu Biebersins til landsins.

Vísir var með beina útsendingu frá Reykjavíkurflugvelli þegar Bieber lenti og svo aftur frá Kórnum á fimmtudag þegar aðdáendur fóru að safnast saman. Nútíminn elskar þetta allt en elskaði augnablikið í spilaranum hér fyrir ofan mest.

Við áttum aðeins við það. Viðurkennum það. En þetta minnir óneitanlega á þegar maður reynir að hafa samband við manneskju sem er föst í símanum.

Auglýsing

læk

Instagram