Tryggvi heldur áfram að slá í gegn sem eftirherma: Gylfi Sig og Lars Lagerbäck ræða saman á Skype

Tryggvi Freyr Torfason, 29 ára gamall Hvergerðingur, er menntaður leikari sem hefur heldur betur slegið í gegn á Snapchat að undanförnu. Nútíminn hefur áður fjallað um eftihermur Tryggva en hann hermdi eftir þeim Gylfa Sig, Binna Glee og Sólrúnu Diego sem að var hreint geggjað. Í gær lék hann samtal Gylfa við fyrrverandi landsliðsþjálfara, Lars Lagerbäck á Skype. Horfðu á stórkostlegt myndband hér fyrir ofan.

Sjá einnig: Geggjaðar eftirhermur Tryggva slá í gegn: Nær Binna Glee, Sólrúnu Diego og Gylfa Sig fáránlega vel

Eins og áður segir hefur Tryggi hermt eftir Gylfa Sigurðssyni áður en þessi túlkun hans á svíanum geðþekka er ný.

„Ég er oft beðinn um að reyna herma eftir hinum og þessum þegar ég er í hópi fólks og ég hef aðeins verið að prufa að gera Lars Lagerback,“ segir Tryggi í samtali við Nútímann. Fyrir áhugasama er notendanafn Tryggva á Snapchat : Tryggvu

Horfðu á Snapchatsögu Tryggva frá því í gær í spilaranum hér að ofan

Auglýsing

læk

Instagram