Costco-ráðleggingar konunnar sem hefur mætt aðeins of oft í Costco í „útlöndum“

Costco ráðleggingar konunnar sem hefur mætt aðeins of oft í Costco í „útlöndum“ … en aldrei mætt í hofið/hófið á Íslandi.

  • Ekkert Kirkland súkkulaði er almennilega gott fyrir þann sem hefur áhuga á súkkulaði. „Dark Chocolate“ þýðir stundum bara 40%.
  • Kirkland batterí leka svolítið þannig að ef að þú kaupir þau, ekki nota þau í neitt nema að þú skiptir reglulega um.
  • Það er ekkert vitlaust að taka með einn vin/vinkonu sem er alltaf smá á bremsunni.
  • Það er mjög ólíklegt að þú þurfir nokkur tíma að nota þrjá stóra WD-40 á þínum lífstíma.
  • Þó að þér þyki eitthvað gott er ekkert víst að þér þyki það gott þegar þú átt tíu kg af því.
  • Það er frábært að kaupa gallabuxur í Costco. Eiginlega allar mínar eru þaðan. Það er hins vegar ekkert góð mátunaraðstaða þannig að það er fínt að mæta í kjól til að máta úti á miðju gólfi. Ekki gera eins og ég og nota síman sem spegil og fatta svo allt einu að þú varst að taka mynd af rassinum á þér í miðri matvöruverslun.
  • Blendtec og kitchenaid virka alls ekki verr þó að þau séu keypt í Costco en það þarf að kaupa t.d. hveitibrautina annars staðar
  • Kirkland Malbec er alls ekki slæm hugmynd!
  • Organic tómatar-paste í dós er frábær hugmynd.
  • Pepperoni pizzan við útganginn er klikkuð!
  • Makedóníu og pistasíu hneturnar eru fáránlega góð hugmynd.
  • Fersku berin eru eiginlega alltaf frábær
  • Það er ekki ólíklegt að það sé sykur í uppáhalds heilsuvörunni þinni.

Yfir og út — shop away!!!

Pistillinn birtist fyrst á Facebook-síðu Svanlaugar en hún gaf Nútímanum góðfúslegt leyfi til að birta þessi frábæru ráð.

Auglýsing

læk

Instagram