Harry Bretaprins og eiginkona hans Meghan Markle ætla að láta af opinberum störfum sínum fyrir bresku konungsfjölskylduna.
Greint hefur verið frá því að Harry og Meghan hafi hvorkii ráðfært sig við neinn né látið neinn innan konungsfjölskyldunnar vita af ákvörðun sinni áður en þau tilkynntu um hana í færslu á Instagram-síðu sinni í gær. Þar segjast þau hafa hugleitt málið í marga mánuði og komist að því að þetta sé best fyrir þau og fjölskyldur þeirra. Þau munu áfram styðja drottninguna en hætta að sinna opinberum embættisskyldum.
Auglýsing
Í tilkynningunni segjast þau ætla að vinna að því að ná fjárhagslegu sjálfstæði, verða óháð konungsfjölskyldunni og hyggjast þau búa til skiptis í Bandaríkjunum og á Bretlandi.