Leggur til að lokun skemmtistaða verði framlengd um viku

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir greindi frá því á upplýsingafundi almannavarna í dag að hann muni leggja það til við heilbrigðisráðherra að krár og skemmti­staðir á höfuðborg­ar­svæðinu verði lokuð í viku til viðbót­ar, eða út sunnu­dag 27. sept­em­ber.

Núverandi lokun á þessum stöðum tók gildi á föstudaginn og gildir út morgundaginn, mánudag 21. september. Er þetta liður í þeim aðgerðum stjórnvalda sem snúa að því að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. Þórólfur telur ekki tilefni til að grípa til harðari aðgerða að svo stöddu.

Auglýsing

læk

Instagram