Stærsti vinningur í sögu HHÍ dreginn út á föstudaginn

Stærsti vinningur í sögu Happdrættis Háskóla Íslands, 110 milljónir króna, verður dreginn út á föstudaginn kemur, 10. desember. Samkvæmt reglum happdrættisins verður að greiða pottinn, ellefufalda Milljónaveltu, út í síðasta útdrætti ársins og því ljóst að einn heppinn miðaeigandi er öruggur með að hreppa stóra vinninginn.

„Potturinn hefur oft verið stór en aldrei svona stór. Þetta er langstærsti pottur í tæplega 90 ára sögu happdrættisins,“ segir Úlfar Gauti Haraldsson, sölu- og markaðsstjóri HHÍ. „Það er gríðarleg tillhlökkun hjá okkur að  draga út milljónirnar hundrað og tíu, skattfrjálsar, og ég tala nú ekki um þegar við fáum að hringja í heppna miðaeigandann. Þetta verður sennilega stærsta jólagjöfin í ár sem mun án vafa koma að góðum notum.“

Hver keyptur miði í Happdrætti Háskólans tryggir þátttöku í þremur leikjum happdrættisins. Í Aðalútdrætti þar sem miðaeigendur skipta með sér um 80 milljónum króna, Milljón á mann þar sem fimm miðaeigendur hreppa eina milljón hver og svo Milljónaveltunni. Í Milljónaveltunni eru settar 10 milljónir króna í pott í janúar. Þá er dregið úr öllum númerum, bæði seldum og óseldum. Ef potturinn gengur ekki út hækkar hann um aðrar 10 milljónir mánuðinn á eftir og svo koll af kolli. Milljónaveltan hefur ekki gengið út síðan í febrúar og er komin í 110 milljónir. Sem fyrr segir verður að greiða Milljónaveltuna út í desember, í lokaútdrætti ársins, og því alveg öruggtað einn heppinn miðaeigandi verður 110 milljón krónum ríkari.

„Í lok árs verðum við búin að greiða út vinninga sem nema um 1,5 milljarði króna og heppnum Íslendingum, sem hafa fengið vinning í Happdrætti Háskólans, hefur þá  fjölgað um 40 þúsund á árinu,“ segir Úlfar Gauti.

Happdrætti Háskólans hefur frá stofnun, árið 1933, fjármagnað nær allar byggingar Háskóla Íslands, sem þýðir að húsnæði og tæki Háskólans eru ekki keypt fyrir skattfé, heldur að langstærstum hluta fyrir fé frá Happdrættinu.

Auglýsing

læk

Instagram