Snjóskóflur, snjóblásarar og snjósköfur seldust upp í febrúar

Nýliðinn febrúarmánuður var einkar snjóþungur um land allt og merki um
það mátti greinilega sjá í verslunum Húsasmiðjunnar. Snjóskóflur og
snjósköfur seldust upp á höfuðborgarsvæðinu og var aukning í
sölu um 140% milli ára.

,,Snjóskóflur kláruðust í vöruhúsinu okkar og flestar gerðir seldust upp í
verslunum okkar um land allt. Við höfum ekki séð svona mikla sölu á
snjóskóflum í mörg ár, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu þar sem salan margfaldaðist milli ára. Einnig höfum við fundið fyrir mikilli aukningu á sölu á salti, sandi, mannbroddum og jafnvel garðslöngum, því fólk er að bræða snjó og klaka með heitu vatni fyrir utan hjá sér,“ segir Magnús Magnússon, markaðsstjóri Húsasmiðjunnar.

Auglýsing

Sem stendur eru þessar vörur uppseldar í vefverslun og takmarkað úrval í verslunum og unnið er að því að fá fleiri snjóskóflur og -sköfur á lager. Hið sama átti við um snjóblásara, en þau eintök sem Húsasmiðjan hafði til sölu seldust einnig upp í febrúarmánuði.

Gera má ráð fyrir að salan detti hratt niður með betri tíð.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing