Tónlistarmaðurinn Krummi, sem margir þekkja sem söngvara rokksveitarinnar Mínus, hefur gefið út nýtt lag og myndband sem ber heitið Smile Till It Ends. Lagið er nýkomið út á netinu og er nú þegar farið að rata til hlustenda. Lagið er hugljúft með glaðlegum undirtón en Krummi er auðvitað snillingur þegar kemur að melódíum og textum.
Í færslu á samfélagsmiðlum segir hann að lagið hafi átt sér langan aðdraganda.
„Það sem einu sinni átti sér aðeins stað í löngum nóttum, smáum augnablikum og hálfkláruðum hugsunum hefur nú fengið sitt eigið líf sem hægt er að hlusta og finna fyrir,“ skrifar hann.
Hann segir að þegar tónlist sé loksins komin út í heiminn taki hún að lifa sínu eigin lífi, óháð skapara sínum.
„Nú er lagið komið út og andar sjálfstætt einhvers staðar þarna úti.“
Samhliða útgáfu lagsins hefur Krummi einnig birt nýtt myndband, sem nú er aðgengilegt á netinu fyrir þá sem vilja staldra við og horfa.
Að lokum þakkar hann þeim sem þegar hafa hlustað á lagið eða deilt því áfram, en bætir við að dyrnar standi opnar fyrir þá sem eiga það eftir.
„Ef þú hefur þegar hlustað, horft eða deilt laginu áfram þá þakka ég fyrir það innilega. Ef ekki, þá standa dyrnar opnar. Tónlistin bíður.“
Hér má sjá myndbandið við Smile Till It Ends:
https://www.youtube.com/watch?v=BhGpyoWa8Ao