Stórsmellurinn Chandelier með áströlsku tónlistarkonunni Siu er eitt vinsælasta lag landsins um þessar mundir. Hin unga Danica Reyes tók upp sína útgáfu af laginu og birti á Youtube-rás sinni í sumar og hefur fengið talsvert lof fyrir.
Hún er þó hægværðin uppmáluð:
Þetta er ekki nálægt því að vera eins fullkomið og upprunalegur flutningur Siu en ég vona að þið njótið.
Ég fékk eitthvað í augað …