Aron Can í toppsætinu – annað árið í röð

Síðastliðið laugardagskvöld (20. janúar) fór hinn árlegi árslistaþáttur Kronik í loftið á X-inu 977 en þátturinn var í beinni útsendingu frá Prikinu. 

Með það fyrir stafni að taka saman allt það sem hæst bar árið 2017 í íslensku og erlendu rappi, fengu umsjónarmenn þáttarins – þeir Róbert Aron og Benedikt Freyr – til sín fróðan hóp álitsgjafa; sérstaka álitsnefnd skipuðu Stefán Þór Hjartarson (blaðamaður), Þura Stína (plötusnúður), Bjarni Jónsson (tónleikahaldari), Ragnar Tómas Hallgrímsson (blaðamaður), Karítas Óðinsdóttir (plötusnúður), Geoffrey Huntingdon-Williams (framkvæmdastjóri), Jónas Óli Jónasson (plötusnúður) og Egill Ásgeirsson (plötusnúður) – ásamt fyrrnefndum þáttastjórnendum.

Þetta árið var valið býsna erfitt, enda mikið um að vera á árinu og þá sérstaklega í íslenskri rapptónlist. Athygli vekur að lag ársins, að mati álitsgjafa Kronik, var Fullir vasar eftir Aron Can en þetta er annað árið í röð sem tónlistarmaðurinnn fagnar slíkum árangri. Í fyrra var það lagið Enginn mórall sem sat í fyrsta sæti listans.

Topp 35 íslenskt

35. Trausti – Elska það
34. Ragga Holm feat. Kilo – Hvað finnst þér um það
33. Alvia feat. CYBER – Cybergum
32. Elli Grill – Skíðagrímu Tommi
31. Kilo – Chain Swang
30. Bent – Oj
29. Geimfarar – Peaceandharmony
28. Aron Can – Sleikir á þér varirnar
27. GKR – Upp
26. Úlfur Úlfur – Bróðir
25. Emmsjé Gauti – Hógvær
24. Black Pox – Feluleikur
23. Cell7 – City Lights
22. Floni – Leika
21. Alexander Jarl – Láttu í friði
20. Reykajvíkurdætur – Ef mig langar það
19. Prince Fendi, Countess Malaise, Black Pox – Watch  Me
18. Lord Pusswhip x Fevor – GTA
17. Huginn feat. Helgi Sæmundur – Eini strákur
16. Aron Can – Eftir tólf
15. Sama-Sem – Sólsetrið
14. Joey Christ feat. Birnir og Young Nick – Gucci Song (Reykjavik Remix)
13. Joey Christ feat. Birnir – Túristi
12. CYBER feat. Countess Malaise – Psycho
11. Herra Hnetusmjör – Labbi Labb
10. Geisha Cartel – 10 bleikir símar
9. Herra Hnetusmjör – Ár eftir ár
8. JóiPé x Króli – O Shit
7. Lexi Picasso – Faith
6. Young Nigo Dripipin’ – Pluggið hringir
5. Floni – Trappa
4. Birnir feat. Herra Hnetusmjör – Já ég veit
3. Birnir – Ekki switcha
2. Joey Christ feat. Birnir, Hnetusmjör og Aron Can – Joey Cypher
1. Aron Can – Fullir vasar

Topp 40 erlent

40. Kodak Black – Tunnel Vision
39. Tommy Genesis – Tommy
38. Tory Lanez – I Sip
37. Drake ft. Giggs – KMT
36. 2 Chainz  ft. Ty Dolla $ign, Trey Songz, Jhené Aiko – It’s A Vibe
35. Oddisee – Things
34. J HUS – Did You See
33. Nicki Minaj, Drake, Lil Wayne – No Frauds
32. Tay-K – The Race
31. Future & Young Thug ft. Offset – Patek Water
30. Post Malone ft. 21 Savage – Rock Star
29. Stormzy – Big For Your Boots
28. BAKA NOT NICE – Live Up to My Name
27. Princess Nokia – Brujas
26. Lil Uzi Vert – The Way Life Goes
25. DRAM  ft. A$AP Rocky & Juicy J – Gilligan
24. Jay Critch Ft. Rich The Kid – Fashion
23. Travis Scott – Butterfly Effect
22. Migos, Nicki Minaj, Cardi B – MotorSport
21. EARTHGANG ft. J.I.D – Mediate
20. Gucci Mane – Met Gala
19. Migos feat. Gucci Mane – Slippery
18. J.I.D. – Never
17. Ayo & Teo – Rolex
16. A$AP Ferg – Plain Jane
15. Kendrick Lamar – DNA
14. Offset, 21 Savage, Metro Boomin’ – Ric Flair Drip
13. Young Thug feat. Future – Relationship
12. 21 Savage – Bank Account
11. G-Eazy – No Limit
10. Lil’ Pump – Gucci Gang
9. Vince Staples – Big Fish
8. GoldLink – Crew
7. French Montana feat. Swae Lee – Unforgettable
6. Migos  – T-Shirt
5. Future – Mask Off
4.  Kendrick Lamar – Humble
3. Plaboy Carti – Magnolia
2. Cardi B – Bodak Yellow
1. Lil’ Uzi Vert – XO Tour Llif3

Topp 10 Erlendar Plötur

10. Syd the Kid – Fin
9. GoldLink – At What Cost?
8. Kodak Black – Project Baby 2
7. Lil Uzi Vert – Luv Is Rage 
6. Ty Dolla $ign – Beach House 3
5. Future – Hendrixx
4. Tyler the Creator – Flowerboy
3. Migos – Culture
2. Playboy Carti – Playboy Carti
1. Kendrick Lamar – Damn

Líkt og fram kom á Vísir.is í dag þá var sú nýlunda tekin upp að velja nýliða ársins og að þessu sinni var rapparinn Birnir valinn:

„Birnir kom á sjónarsviðið í byrjun árs og gerði allt gjörsamlega vitlaust með lögunum „Sama tíma“ og „Ekki switcha,“ en síðara lagið var í þriðja sæti árslistans og hefði hæglega getað endað í því fyrsta. Þessu fylgdi hann eftir með hverju gestaerindinu á fætur öðru; spilaði meðal annars á trylltum tónleikum á Secret Solstice; og kláraði árið á að senda frá sér lögin vinsælu „Út í geim“ og „Já ég veit.“ Það verður spennandi að fylgjast með Birni á árinu en frá honum er væntanleg plata sem á að vera algjör negla.“

– Róbert Aron Magnússon (Vísir.is)

Nánar: https://www.visir.is/g/2018180129804/arslisti-utvarpsthattarins-kronik-2017-

Auglýsing

læk

Instagram