Hjólandi borgarstjórinn vakti undrun

Dagur B Eggertsson mætti á reiðhjóli á fund Mike Pence varaforseta Bandaríkjanna í dag. Þetta vakti mikla undrun yfirmanns öryggismála á Höfða.

Yfirmaðurinn virtist efast um að Dagur væri yfir höfuð borgarstjórinn.

„Ég hef aldrei áður hitt borgarstjóra á hjóli,“  tjáði hann Degi og þríspurði starfsmann sendiráðs Bandaríkjanna hvort Dagur væri í alvörunni borgarstjórinn.

„Einhvern tíman er allt fyrst,“ svaraði borgarstjóri öryggisverðinum en Dagur gantaðist með atvikið á Twitter í dag.

Þetta kom fram á vef Fréttablaðsins í dag.

Auglýsing

læk

Instagram