Forsíðan á Verdens Gang í Noregi á Íslensku: „Já, við elskum þetta land“

Array

Frækinn sigur Íslands á Englandi á EM í Frakklandi í kvöld hefur vakið heimsathygli. Eins og Nútíminn greindi frá þá er breska pressan brjáluð en þau sem halda með Íslandi hafa eflaust aldrei verið fleiri.

Kári Árnason er á forsíðu norska dagblaðsins Verdens Gang sem kemur út í fyrramálið. Hluti forsíðunnar er á íslensku og stóru orðin eru ekki spöruð: „Já, við elskum þetta land!“

Á forsíðunni kemur einnig fram að Norðmenn sjái eftir að hafa gefið Dönum Ísland árið 1397 en að í dag séu þeir allir Íslendingar.

Hér má sjá forsíðuna í öllu sínu veldi.

Auglýsing

læk

Instagram