Heimir Hallgríms sendir Messi skýr skilaboð: „Þetta er fyrsti leikurinn. Slakaðu bara á“

Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, hitar nú upp fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta sem fer fram í Rússlandi í sumar. Ísland tekur þátt í mótinu eins og við vitum öll og þjálfarinn, okkar maður Heimir Hallgrímsson, er í stuttu myndbandi á Twitter-síðu FIFA í dag.

Heimi er boðið að senda stutt skilaboð til Lionel Messi en Argentína og Ísland mætast í fyrsta leik liðanna á mótinu. Skilaboð Heimis til Messi eru skýr: „Þetta er fyrsti leikurinn. Slakaðu bara á.“

Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Auglýsing

læk

Instagram