Pökkuðu aleigunni niður og eru á leiðinni upp að grunnbúðum Everest

Þær Hafdís og Karess kalla ekki allt ömmu sína en þær stöllur eru á jógísku ferðalagi um heiminn. Hafdís Lind er fædd og uppalin á Íslandi en Karess kemur frá Kaliforníu. Þær segjast hafa fundið sálufélaga í hvorri annarri, þær hafa eytt nánast hverri vökustund saman síðustu þrjú árin og giftu sig eftir aðeins ár saman. Þær eru búsettar á Íslandi en eru um þessar mundir á ferðalagi um Asíu.

Hafdís flutti aftur til Íslands en fékk aldrei landvistarleyfi í Bandaríkjunum og flaug tíminn frá þeim sitthvorum megin við Atlantshafið á meðan þær rifust við lögfræðinga og stóðu í stöðugri skriffinnsku að koma Hafdísi út til Bandaríkjanna. Þær lýsa þessu ári í sundur sem einum erfiðasta tíma í sambandi þeirra en að fjarlægðin hafi kennt þeim að kunna að meta hvor aðra á glænýjum forsendum.

„Árið okkar í sundur einkenndist af mikilli sorg, alltaf að kveðjast og vissum aldrei hvenær við fengjum aftur að búa saman en við lærðum mikið á þessum erfiða tíma og áttuðum okkur á því að sama þótt einhver æðri öfl reyndu að stía okkur í sundur, þá gæti ekkert stöðvað samband okkar.” segir Hafdís.

Þegar Kaliforníudraumar þeirra rættust ekki upplifðu þær ákveðin vonbrigði en langaði þó að gifta sig og halda stærðarinnar ástarfögnuð. Þegar ekkert varð úr landvistarleyfi Hafdísar til Bandaríkjanna, pakkaði Karess öllu niður og flutti til Íslands. Seinna létu þær kylfu ráða kasti og giftu sig á sýslumannstofunni í Keflavík þann 9. júní 2017.

„Við stóðum þarna í slitnum skóm og gömlum fötum og giftumst besta vini okkar. Þetta var fullkomið, þetta var allt sem við þurftum.” segir Hafdís.

„Einn daginn munum við halda stóra veislu en akkúrat núna höfum við ákveðið að verja tíma okkar og fjármunum í ferðalög, lærdóm og að upplifa heiminn.” bætir Karess við en þær fengu þó tækifæri á að taka gullfallegar brúðarmyndir í íslensku landslagi í gegnum vin þeirra sem er ljósmyndari.

Nú eru þær sannarlega að upplifa ferðadrauminn en þær hjónin eru staddar á Balí eftir að hafa ferðast um Tæland, Malasíu og Indónesíu. Skemmtilegt er að fylgjast með þeim hjónum á samfélagsmiðlum, bæði á ferðalögum og hér heima, þar sem lífstíll þeirra er ansi frábrugðin hinum hefðbunda Íslending.

Þær Hafdís og Karess fara sýnar eigin leiðir og leita innblásturs í andlegum fræðum og ilmkjarnaolíum, lifa eftir grænkeramataræði, stunda jóga af ástríðu, hugleiðslu og núvitund og fyrir stuttu ákvað Karess að leggja skónna á hilluna, í orðsins fyllstu merkingu, og hætta að ganga í skóm.

„Ég vildi upplifa hvernig það væri að ganga um skólaus eins og forfeður okkar og hvort það myndi breyta einhverju fyrir mig, stoðkerfið eða snerpuna, að vera sífellt jarðtengd. Nú hef ég gengið skólaus í rúma tvo mánuði og í hreinskilni sagt, þá líður mér eins og ég sé mun jarðbundnari. Ég myndi mæla þessu fyrir alla, þó ekki væri nema í einn dag!”

View this post on Instagram

healing hands.

A post shared by hafdís lind (@hafdislind) on

Þær viðurkenna það þó að þessar öfgafullu breytingar á lífstíl síðustu árin hafa kostað þær vináttur, viðskiptatækifæri og fjölskyldutengsl eins og gjarnan gerist þegar fólk ferðast af hinum troðna meðalvegi. Þær líta þó ekki á slíkar breytingar sem neikvæðar heldur fremur sem ákveðna hreinsun þar sem lífstíll þeirra hefur einfaldlega losað þær við eituráhrif ýmiss fólks. Þeirra sannfæring er sú að með því að fylgja slíkri lífspeki séu allir þægindarrammar í molum en fyrir utan slíka ramma sé hægt að öðlast ótrúlegustu hluti.

„Þetta er alls ekki auðvelt, þetta er meira að segja frekar ógnandi hugsun og það þarfnast mikils hugrekkis að stíga út fyrir þægindarammann og stíga inn í vald okkar og okkar eina sanna sjálf. Hafðu bara óbilandi trú á sjálfum þér og hlustaðu á lífið, hvert það vill leiða þig og þrátt fyrir að þér finnist eins og allt fari úr skorðum er það rétta leiðin. Treystu sjálfum þér, taktu sjálfan þig í sátt og umfram allt elskaðu sjálfan þig alla daga.” segir Karess og biðlar til fólks að leita að innri styrk og fylgja eigin sannfæringu.

View this post on Instagram

I started deeply loving this human experience I was having, my heart was beating and I was beating with my heart. Until one day my heart started beating to the beat of another heart and my life was forever changed. I had met the love of my life. I’d been asking god to give me strength to stand my two feet on the ground, but instead I was flying through cosmos and realities I had no of existing. I had been praying for my heart to beat loud enough for me to hear it but now my heart was expanding to the size of the galaxy, growing full speed and beating like a jungle drum. ~ this ~ is when my life officially began. This is when I became alive, I became conscious. This is when I started living in unconditional love. The highest form, love. The word I thought I knew and understood, now had a total new meaning. This girl had opened up an energy portal within me and nothing could have stopped it. Not only was my heart expanding to all ends of this world, but my consciousness was too. I started feeling vibrations. Powerful vibrations of energy. Sometimes it was so much I had to question if it was safe, or if my brain would fry and my heart explode. I had never felt such power in my life. I was awake. Whatever power I had before had now multiplied by a million and it took us not long to realize that what we had was special. What we had could change the world. Can change the world. Will change the world. ✨?✨?✨ .. to be continued

A post shared by hafdís lind (@hafdislind) on

Draumur stúlknanna hafði lengi verið að ferðast um heiminn og sóttust þær eftir að kynnast framandi menningararfi sem þær gætu síðar heimfært í sitt eigið líf. Þær létu ekkert stöðva sig í draumförum sínum og strax eftir brúðkaupið fóru þær að skipuleggja og leggja fé til hliðar fyrir draumaferðinni.

„Við vissum báðar að okkur langaði að taka frá heilt ár í ferðalag þar sem við myndum læra jóga og leggja stund á hugleiðslu, gefa frá okkur í sjálfboðavinnu, búa með fólki af öðrum menningarlegum uppruna og upplifa heiminn í gegnum augu annarra. Við vissum að þetta gætum við á slíku ferðalagi og allt á meðan við skoðuðum einhverja fallegustu staði á jarðríki, svo þetta var algjört „win win!” segir Karess.

Þær viðurkenna það að lífstíll þeirra breytist töluvert frá hversdagsleikanum þegar þær eru að ferðast. Þær reyna þó að lifa ákveðnu meinlæta lífi á ferðalögum sínum og kjósa frekar að gista í heimahúsum, farfuglaheimilum eða ódýrum gistiplássum frekar en rándýrum hótelum og leyfa sér litlar nautnir, aðrar en þær að vera til staðar, lifa og njóta. Þær reyna að elda sem oftast sjálfar og snæða frekar á ódýrum grænkerastöðum heimamanna heldur en skyndibitakeðjum.

„Þegar við erum ekki að ferðast reynum við að gera alltaf einn hlut á dag, sem er bara fyrir okkur. Hvort sem það er hugleiðsla, lestur eða skrif, þá eyðum við alltaf ákveðnum tíma í okkur sjálfar, og þegar við ferðumst þá verður allur dagurinn að þessu „eina” góðverki til sjálfrar okkar!” segir Hafdís. Mikilvægi þess að ferðast í núinu er þeim algjörlega lífsnauðsynlegt og reyna þær að ferðast án ákveðinna dagsetninga, ráðagerða eða dagskrár og njóta frekar samvista sinna við náttúruna og leyfa lífinu að stjórna sér, en ekki öfugt.

Ferðalag hjónanna hófst á Koh Phanang í Tælandi í fyrrahaust. Á eyjunni Phanang sóttu þær mánaðarlangt jógakennaranámskeið í litlum jógaskóla, La Casa Shambala. Þeim líkaði dvölin og andrúmsloftið svo að þær eyddu tveimur mánuðum á eyjunni fögru og stunduðu jóga daglega.

„Þetta var mjög krefjandi 200 klukkustunda nám með áherlsur á „chakra” eða orkustöðvar líkamans. Við lærðum „hatha“ og „vinyasa“ jóga þar sem áhersla er lögð á jafnvægi líkama, huga og orkustöðva. Megináherslan er ekki endilega jógastöðurnar heldur yfirveguð öndun og jafnvægi. Hver andardráttur er tilbeðinn í hverri hreyfingu.“ útskýrir Karess.

Kennslan hófst strax snemma að morgni með einnar klukkustundar hugleiðslu um sjöleytið,  því næst 3-4 klukkustundum af jógaæfingum, tveimur klukkustundum af heimspekikennslu og svo fjórum tímum sem varið var í að kenna jógastöðurnar í miklum smáatriðum. Karess og Hafdís vanda skólanum mjög kveðjur sínar og segjast gjörsamlega upprifnar af þessari lífsreynslu, aðstöðunni og fólkinu sem þær kynntust.

„La Casa Shambala varð eins og heimili okkar, við mynduðum sannkölluð fjölskyldubönd við fólkið sem var með okkur og lífsreynslan var sem ævintýri líkust” segir Hafdís dreymin og Karess bætir við, „Það er ákveðin áskorun að koma því í orð hversu mikið við lærðum á þessum tíma og hversu djúpstæð áhrif þetta hafði á líf okkar. Við áttuðum okkur á því að þetta var aðeins byrjunin, þessi fræði heilluðu okkur svo mikið að við höfum ákveðið að sækja frekara jógakennaranám á Indlandi.”

View this post on Instagram

Two days ago we finished our 200hr YTTC Nothing could of possibly prepared me for what was going to take place I came here for this piece of paper But the real reward are the people we went through the journey with The second we arrived at La casa Shambala it felt like home And what we created during these 30 days was a family I’ve never met such a courageous bunch, willing to dive deep into themselves everyday to discover what lies beneath the surface We went through SO MUCH SHIT AMAZING, LIFE CHANGING SHIT The gratitude in my heart for every single one of you is overflowing You’re all my teachers, my family, and forever my angels ✨ Thank you for the laughs, the cries, the exploration of your minds and soul, your hugs, your smiles, your pains, your fears.. but most importantly- YOUR LOVE WE ARE WARRIORS WE DID IT YALL WE YOGA TEACHERS LA CASA SHAMBALA FOR LIFE ?‍♀️?

A post shared by Karess Gallagher (@karessmedownn) on

Eins og stelpurnar segja hefur jóga á vesturhveli jarðar löngum þjónað einkar yfirborðskenndum tilgangi en sönn jógaiðkun er að margra mati mun meira en líkamlegar stöður og teygjur. Þær segja hinn sanna tilgang jóga vera tengslamyndun við sjálfið og hið æðra, að binda saman hugvitund okkar við eitthvað stærra og meira. Jóga megi því iðka í margskonar tilgangi, ekki aðeins til þess að halda sér í góðu líkamlegu formi heldur einnig til að rækta okkar andlega form og öðlast dýpri skilning á lífinu.

„Jóga færir okkur svo miklu meira en líkamlega burði, jóga færir okkur töfrandi augnablik hamingju, friðar og samstillir hjartað við okkar hreinasta sjálf. Jóga kennir okkur að vera í fullkomnu tengslajafnvægi við sjálf okkur og þegar við erum þannig stödd er auðveldara að tengjast heiminum í kringum okkur.” segir Hafdís.

Hugleiðsla er þeim hjónum einnig hugleikin og þykir þeim miður hversu lítið hinn venjulegi Íslendingur virðist hugleiða dag hvern. Hugleiðsla sé aldagömul aðferð til þess að öðlast innri frið og dýpri skilning og hugleiðsla sé gott tól við stöðugu áreiti frá skjátækjum, rafmagni, upplýsingaflæði og öðrum óþarfa. Það sé aðeins vegna menningarlegrar skilyrðingar á Vesturlöndunum sem margir trúa því að hugleiðsla sé aðeins stunduð í trúarlegu skyni eða að hún sé eitthvað stórkostlega flókið fyrirbæri sem aðeins nýtist furðufuglum sem ganga ekki skóm. Hugleiðsla ætti að vera öllum aðgengileg þar sem hún gæti hjálpað fólki að öðlast betri andlega heilsu.

„Við lærðum líka allskonar mismunandi leiðir til hugleiðslu, aðrar en þær sem þykja klassískar að sitja og anda sig inn í hugleiðandi ástand. Við lærðum til dæmis ákveðna matmáls-hugleiðslu, þar sem við snæðum saman í hljóði og neytum hvers bita í varkárni. Það virkar þannig að maður borðar með höndunum og tekur aðeins upp litla bita í einu, tyggur matinn vel og lengi á meðan þú blessar matinn í huganum og sýnir næringunni þakklæti. Þess konar borðsiðir styrkja önnur skilningarvit, eins og lyktarskyn, bragðskyn og snertingu því engin hnífapör eru á boðstólunum” segir Karess, „Þú tyggur matinn, með lokuð augun, þangað til hann verður nánast að vatni í munninum á þér og kyngir svo, nýtir þannig hvert einasta vítamín og steinefni sem finnast í matnum og á sama tíma ertu meðvitaður um magnið, hvað þú ert að borða og hversu þakklátur þú átt að vera fyrir að hafa mat á borðum.” bætir hún við.

Þesskonar hugleiðslu mæla þær sérstaklega með í okkar vestræna samfélagi þar sem matarsóun og lífstílssjúkdómar tengdir ofáti herja á samfélagið. Þær hvetja alla til þess að prófa slíka matmálshugleiðslu og setja þannig átvenjur sínar í nýtt samhengi og sporna við ýmsum vandamálum tengdum mataræði fólks í dag.

„Það eru fáar leiðir til í heiminum sem kenna þér eins mikið um sjálfan þig og stilla hugann eins vel og að hugleiða.” segir Hafdís.

Stúlkurnar eru nú staddar á Balí eins og áður segir og eru á leiðinni í tíu daga langt hugleiðslunámskeið. Í þessa tíu daga sem þær dvelja á hugleiðslusetrinu er stranglega bannað að tala upphátt, mæta augnarráði, nota snjalltæki eða tölvur, engin afþreying er í boði og hvorki penni né blöð fáanleg. Markmiðið með slíkum setrum er að leggja stund á hugleiðslu og aftengja sig um stund. Þessi upplifun kallast „Vipassana”, sem er sanskrít og merkir „innsýn”, og er fengin að láni úr aldagömlum fræðum búddista. Dagskráin er ofureinföld en hún felst í því að vakna við fyrsta hanagal, hugleiða og nærast yfir daginn og hvíla sig vel á næturnar. Á setrinu búa búddamunkar sem leiða fólk í hugleiðslur og kennslur í búddískum fræðum og eru stelpurnar spenntar fyrir því að kynnast búddafræðum betur, þó þær fylgi engum sérstökum trúarbrögðum.

„Þessi lífsreynsla er eitthvað sem við hlökkum mikið til, að líta djúpt inn á við í algjörri þögn og læra að sjá hlutina handan augnarráðs okkar. Engar truflanir, ekkert utanaðkomandi áreiti bara við og samferðafólk okkar að tengjast og sleppa egóinu í smástund. Það verður magnað.” segir Karess og Hafdís tekur undir.

„Við lifum öllum dögum í þakklæti. Við gefum okkur tíma til að heilsa fólki, brosa til næsta manns og fögnum hverjum einasta tebolla eða kaffibolla á morgnanna, þakklátar fyrir það að upplifa enn einn dag lifandi.” bætir Karess við og eru þær vissar að þessi tíu daga hljóðláta hugleiðsla eigi eftir að færa þeim mikið.

View this post on Instagram

Meditation ~ What can one accomplish ? By taking time everyday, Just to observe ourselves.. Observing our thoughts, feelings, and emotions What can this do for our day to day lives ? Taking a few moments to breathe and bring awareness to the body To listen, contemplate, meditate Because of cultural conditioning, we have been lead to believe meditation is only a religious practice Only practiced by the monks and eastern religions But In fact meditations has been used by cultures all over the world .. Because of its incredible healing capabilities ! We spend most of our lives running from our minds So meditation can be quite scary for most Having to sit and face our thoughts head on But what happens when we do this ? We get to know ourselves, the real us What’s really going on in there ? Who’s driving that body suit ? No one knows but you .. I have a challenge for you- We all lead very busy, high paced lives But the next time you get a moment/time for yourself, and you go to reach for that phone in your pocket, turn on the television, or blast your music Take a deep breathe instead, and close your eyes Wherever you are, whatever position you’re in Just take a deep breath, slowly shut those eyes, and start to observe your body, observe your thoughts, and observe your breath Don’t try and control, just observe Check in, and tune in TO YOU See what’s going on, on the inside We are constantly being stimulated by the outside world, but there is an inner world too Don’t forget about the other part of you ~ Take 2 minutes, 5 minutes, whatever you can bare and see how you feel after .. No harm can be done by taking a few conscious breaths Meditation ain’t hippie dippie shit anymore Awareness is strength Observing is courageous Stillness is peace Breath is life ✨? Blessings to all ~

A post shared by Karess Gallagher (@karessmedownn) on

Stúlkurnar segja að tími sé kominn til þess að samfélagið komist aftur í tengingu við einstaklinginn. Við lifum í samfélagi sem þrífst á stöðugum samskiptum við aðra og við upplifum lífið meira í gegnum skjái og minna fyrir okkur sjálf. Alltof miklum tíma er eytt gónandi á skjái að skapa hina fullkomnu ímynd en eina rétta leiðin sé að fylgja hjartanu, ekki samfélaginu, en það er gömul saga og ný, sem stúlkunum þykir hafa gleymst.

„Við erum öll listamenn, dansarar, söngvarar, ferðalangar, könnuðir, uppfinningamenn, ljóðskáld, rithöfundar og skaparar. Öll búum við að sérstökum töfrum innra með okkur og hvers vegna að ganga troðnar slóðir þegar þú getur fylgt þér og þinni sannfæringu um ótroðnar slóðir?” segir Hafdís.

„Hlustum á hjartað. Hjartað hefur alveg jafn mikil samskipti við okkur eins og heilinn á tjáskipti við magann þegar við erum svöng, þá eiga hjörtu okkar tjáskipti við okkur og reyna sífellt að ná athygli okkar. Mannfólkið á það til að vera rökréttara fremur en annað og því höfum við lært að fylgja heilanum frekar en hjartanu. Munurinn er hinsvegar að heilinn hugsar en hjartað veit.“ segir Karess brosandi.

Lífsboðskapur stelpnanna er ofureinfaldur en svo mikilvægur, það er einfaldlega að trúa á sjálfan sig. Þær vildu óska þess að fleiri lifðu lífinu fyrir sjálfan sig fremur en að lifa fyrir starfsframa, samfélagsmiðla eða aðrar veraldlegar ástæður. Oft gleymist hversu einstök við erum, þegar mætir okkur flóðalda uppstilltra ljósmynda og stöðuuppfærslna en við ættum að líta á lífið sem gjöf, ekki kvöð.

„Það er engin tilviljun að þú ert hér, akkúrat núna, sem þessi manneskja. Lífið er gjöf og þegar við meðtökum þann sannleik mun lífið færa þér allar þær gjafir sem þú þarfnast. En spurningin er bara – ert þú tilbúin að trúa því hversu magnaður þú ert í raun og veru? Það merkilegast sem við uppgötvuðum og breytti hugarfari okkar algjörlega er að átta sig á því hversu mikilvæg hver og ein einasta manneskja er í heiminum, hversu ótrúlega mikilvægur þú ert sem einstaklingur. Mundu að ef þú skiptir engu máli í stóra samhenginu þá værir þú ekki hér” segir Karess og Hafdís bætir við, „Mikilvægi lífs þíns er hvorki meira né minna en mikilvægi annarra og öll hin kyngimagnaða fegurð heimsins er falin innra með okkur, mundu það!”

Samband þeirra hjóna er vægast sagt einstakt og saga þeirra eftir því. Þær sýna hvorri annarri mikla ást, bæði út á við og inn á við og hafa fengið fjölda jákvæðra skilaboða á samfélagsmiðlum frá fólki sem þykir samband þeirra fallegt og aðdáunarvert. Aðspurðar því hvernig standi á því að samband þeirra hjóna sé svo sterkt eru þær báðar staðfastar á því að besta leiðin til að vaxa og dafna í samböndum sé án efa að elska sjálfan sig, þiggja og taka sjálfan sig í sátt fyrst áður en maður opnar hjarta sitt fyrir öðrum.

„Þegar við setjum sjálf okkur ekki í fyrsta sæti og erum ekki sátt við okkur sjálf, þá myndum við sambönd á röngum forsendum. Við reynum að fylla upp í tómarúm innra með okkur sem enginn getur fyllt upp í nema við sjálf. Þegar við kynntumst höfðum við báðar gengið í gegnum löng tímabil af sjálfsuppgötvunum og lært að græða gömul sár á sálinni. Þannig þegar að við kynntumst bárum við engar væntingar til hvor annarrar og vissum að það sem myndi gerast, alveg sama hvað myndi gerast, væri hið rétta.” segir Hafdís um samband þeirra hjóna.

Heiðarleikinn er þeirra lykill að heilbrigðum og góðum samskiptum. Þær trúa því að þó leiðir þeirra hafi legið saman og þeim sé ætlað að eyða lífinu saman á enda, sé ekki hægt annað en að lifa lífinu fyrir sjálfan sig. Það er mikilvægt að sýna maka sínum, vinum og fjölskyldu þakklæti dag hvern og leyfa fólki að vaxa og dafna án þess að reyna að stjórna því eða þeirra vegferð.

View this post on Instagram

Took hafdís snorkelling for her first time the other day. I am beyond gratitude to see the world, but to watch you experiencing our earth in a new light is beyond words. Your deep appreciation for everything makes the world even brighter. We’ve been officially traveling for 6 months now. Nothing has changed, our plans change every week, still following the flow and listening to all the little signs. The last 4 weeks have included a lot of rebirths, ending & beginnings of new cycles, major avatar cleanses in Mind, body, and soul. So much gratitude for this beautiful woman who continues to push us, and assists us in raising the connection between our souls, our earth, and all that exists around us. We decided to come back to bali, so we are taking a flight out to Singapore and coming straight back. Something is still in Bali we have yet to find, and I’m excited to see what surfaces in the next 4 weeks. Blessings to all ~

A post shared by Karess Gallagher (@karessmedownn) on

„Þegar okkur lendir saman eða við rífumst þá reynum við að mætast á miðri leið með opið hjarta, opin huga og fulla heyrn. Við leynum engu og ræðum hlutina samstundis, í stað þess að vera langræknar og leyfa vandamálunum að grasserast. Það er bara ótrúlega mikilvægt að vera fullkomlega hreinskilinn þó það sé stundum asnalegt, erfitt eða geri mann berskjaldaðan.” segir Hafdís.

„Við ræðum saman eins og jafningjar og leysum úr málunum í sameiningu, með yfirveguðum samskiptum og ást í hjarta sem endar oftast á gnægð faðmlaga og kossa!” bætir Karess við, hlæjandi.

„Já, það er mikilvægt að gleyma ekki barninu í sér, leyfa sér að elska á ótal vegu og aldrei setja neinar óraunverulegar væntingar á herðar maka þíns. Við erum svo heppnar að vera hér, heppnar að eiga þetta líf saman og svo framarlega sem við munum að vera til staðar í núinu, hlusta og halda utan um hvor aðra þá eru okkur allir vegir færir” segir Hafdís og bætir við, „Ástin er gjöf og ef þú ert nógu lánsamur að búa að þeirri gjöf, þá skaltu hlúa að ástinni hvert einasta augnablik því þú ert svo ótrúlega, ótrúlega heppinn að fá að upplifa og deila lífinu með fallegri, magnaðri manneskju sem elskar þig skilyrðislaust. Vertu þakklátur fyrir það og þá gengur allt svo miklu betur!”

View this post on Instagram

WE GOT SOME BIG NEWS ! ? as many of you know karess and i recently went on a journey of expanding our minds and souls in new parts of the world. our journey began with getting our YTTC and for the rest of the trip to be unplanned to be free to receive and take opportunities that would come along the way. we have showed up. we have listened. we have prayed. we have felt. we have seen. and now, life has now given us an opportunity of a lifetime and my heart can’t stop fluttering over it. on March 11-26, 2019 we will be co-teaching a course in the heart of the Himalayas with the amazing team of @jnoifeld #themiddlepathmovement and @nepaltrekkingroutes_ . a 15 day trek up to MOUNT EVEREST BASE CAMP ? with daily meditation, yoga practises and pranayama breathing exercises in one of the worlds most sacred places. this is going to be pure magic as we get the chance to connect with nature and spirituality on the highest mountain in our world and I invite you to tag along and join us in this very special journey we are about to take. ❤️✨❤️ I will be posting all information on our website soon so you can read all about it, until then you can message me for more details or email us at everestyogatrek@gmail.com I will be posting daily updates, pictures, stories on @everestyogatrek so feel free to follow and share the love. So.. you got any new years resolutions? ? #comehikeeverestwithus

A post shared by hafdís lind (@hafdislind) on

Eftir hugleiðslusetrið á Balí liggur leið hjónanna til Nepal.

„Okkur var boðið að taka þátt í sérstakri fimmtán daga göngu í gegnum Himalaya fjöllin og upp að grunnbúðum Everest. Þetta var í gegnum einn kennarann sem við kynntumst í La Casa Shambala á Tælandi. Gangan verður óhefðbundin að því leytinu til að við notfærum okkur jóga, hugleiðslu og pranayama-djúpöndun á göngunni og það verður örugglega magnað að ganga slíka göngu á þessum fallegu, dularfullu og heilögu slóðum” segir Karess en hún segir það lengi hafa verið draum hennar að klífa Himalayafjöllin. Þær Karess og Hafdís fá einstakt tækifæri sem nýjir jógakennarar að klífa fjöllin og kenna jóga á leiðinni ásamt fríðu föruneyti fjallgöngugarpa og jógaiðkenda.

„Þetta er gríðarlegur heiður og við erum ótrúlega spenntar að taka þátt í þessu ferðalagi með vinum okkar hjá Nepal Trekking Routes.“ segir Karess og bætir við að hún verði þó líklegast að kaupa sér góða gönguskó, enda ekki mælt með því að ganga berfættur á ísilögð fjöll.

„Ætli ég kaupi mér ekki skó til að forðast frostbitið!” segir hún hlæjandi.

View this post on Instagram

bali you are so sexy ?

A post shared by hafdís lind (@hafdislind) on

Þegar ferðin tekur enda, hvenær sem það verður, vonast hjónin til þess að snú aftur til Íslands og stofna fjölskyldu. Þær búa að stórum draumum um framtíð sína saman og dreymir m.a. um að byggja saman hús, rækta stóran garð, eignast börn og seinna opna hugleiðslu- og jógasetur á Íslandi, svipað þeim setrum sem þær hafa heimsótt og koma til með að heimsækja á ferðalaginu. Boðskapurinn sem þær vilja koma á framfæri er sáraeinfaldur, elskaðu sjálfan þig og fylgdu hjartanu, lærðu að kunna að meta litlu hlutina og umfram allt skalt þú vita að þú skiptir máli.

Hægt er að fylgjast með þeim stöllum á Instagram undir notendanöfnunum @karessmedownn og @hafdislind. Hægt er að kynna sér jógaskólann La Casa Shambala hér og jógíska fjallgönguferðina hér.

Auglýsing

læk

Instagram