today-is-a-good-day

Umhverfisstofnun óskar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2021

Umhverfisstofnun óskar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2021. Viðurkenningin verður veitt fyrirtæki, stofnun, einstaklingi eða öðrum fyrir framúrskarandi lausnir sem stuðla að minni plastnotkun og plastúrgangi í samfélaginu.

Viðurkenningin er hluti af aðgerðum umhverfis- og auðlindaráðherra til að draga úr neikvæðum áhrifum plastnotkunar. Henni er ætlað að draga fram það sem vel er gert og hvetja til nýsköpunar. Sérstök úthlutunarnefnd velur viðurkenningarhafa en hana skipa fulltrúar frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtökum iðnaðarins, Plastlausum september, Ungum umhverfissinnum og Umhverfisstofnun.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum. Fyrirtæki, einstaklingarog stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.
Við val á verðlaunahafa er horft til eftirfarandi þátta:

  • nýsköpunargildis viðkomandi lausnar
  • stuðlar lausnin að hringrásarhagkerfinu
  • hvert er almennt framlag lausnarinnar til umhverfismála
  • hvaða plastvöru er verið að komast hjá með lausninni
  • hefur lausnin möguleika á að komast í almenna notkun

Tillögur skulu berast Umhverfisstofnun eigi síðar en 1. júlí næstkomandi, merktar „Tilnefning: Bláskelin“ á netfangiðust@ust.is eða með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.

Umhverfis- og auðlindaráðherra mun veita viðurkenningunaí tengslum við árvekniátakið Plastlaus september.
Sjá nánar um Bláskelina hér.

Fyrri vinningshafar eru matarbúðin Nándin sem vill endurvekja mjólkurpósts hugsunina þar sem umbúðir í gleri fara í hringrás. Árið 2019 vann svo Brugghúsið Segull 67 sem hannaði nýja bjórkippuhringi í staðinn fyrir plast. Það verður því spennandi að sjá hver vinningshafinn verður 2021.

Auglýsing

læk

Instagram