Á milli stunda – ÉG BÝÐ MIG FRAM, krassasig

Í dag, föstudaginn 2. október 2020, kemur út lagið “Á milli stunda” sem er titillag þriðju sýningarinnar í seríunni ÉG BÝÐ MIG FRAM í leikstjórn Unnar Elísabetar. Lagið er samið og pródúserað af krassasig sem sér um tónlistina í verkinu. Á milli stunda verður frumsýnt 22. október næstkomandi á Hafnartorgi.

Lagið og sýningin fjalla um litlu augnablikin sem gerast inn á milli í lífinu og allt sem á sér stað á milli stóru stundanna. Þriðja verkið í seríunni ÉG BÝÐ MIG FRAM verður óvenjuleg hátíð um venjulegt líf og tvinnar saman ólík listform. Samhliða laginu kemur einnig út tónlistarmyndband og í því kemur fram úrvalslið listamanna; bæði leikarar, dansarar, tónlistarmenn og sviðshöfundar sem standa á bak við sýninguna. ÉG BÝÐ MIG FRAM 1 fékk tilnefningu til Grímunnar og ÉG BÝÐ MIG FRAM 2 var valin sýning ársins á Reykjavík Fringe Festival. Verkefnið hefur hlotið styrki frá Reykjavíkurborg og úr sjóði atvinnuleikahópa.

 

Um krassasig: krassasig hefur verið að gera það gott síðan hann gaf út plötuna MMMM með hljómsveitinni og fjöllistahópnum Munstur. Nú er hann sóló undir listamannsnafninu krassasig og gerir einstaklega vandað popp. Hann hefur gefið út lögin “Einn dag í einu” & “Þú ert eins og hún” á þessu ári og hafa bæði náð miklu flugi í útvarpi og á streymisveitum. Krassasig var tilnefndur sem bjartasta vonin á íslensku tónlistarverðlaununum 2020.

Um Unni Elísabetu: Unnur Elísabet starfar sem leikstjóri, danshöfundur og listrænn stjórnandi. Hún hefur unnið með Íslenska dansflokknum, Leikfélagi Reykjavíkur og sjálfstætt síðan hún útskrifaðist úr Konunglega Sænska Ballettskólanum 2003. Nýlega útskrifaðist hún úr skólanum Institute of Arts Barcelona með Mastersgráðu í listum með áherslu á leiklist og leikstjórn. Unnur setur nú upp í þriðja sinn verðlaunasviðslistahátíðina ÉG BÝÐ MIG FRAM.

Auglýsing

læk

Instagram