today-is-a-good-day

Aflýsa Einni með öllu

Hertar aðgerðir vegna útbreiðslu kórónuveirunnar voru kynntar á blaðamannafundi í dag. Í ljósi nýjustu frétta hefur fjölskylduhátíðinni ,,Ein með öllu“, sem átti að fara fram á Akureyri um verslunarmannahelgina, verið aflýst ásamt öllum viðburðum sem henni tengjast.

,,Við áttum fund með lögreglunni á Akureyri og bæjaryfirvöldum í morgun og það var algjör einhugur um að taka enga áhættu í þessari uggvænlegu stöðu sem upp er komin. Við munum að sjálfsögðu fylgja fast eftir öllum fyrirmælum frá sóttvarnaryfirvöldum og þar með er einboðið að aflýsa fjölskylduhátíðinni Einni með öllu,“ segir Davíð Rúnar Gunnarsson, skipuleggjandi hátíðarinnar.

,,Við viljum hvetja bæjarbúa sem og landsmenn alla til þess að taka stöðunni alvarlega og fylgja fyrirmælum í hvívetna. Allt annað væri einfaldlega óboðlegt í þeirri grafalvarlegu stöðu sem nú er komin upp,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri.

Þetta kemur fram á vefnum akureyri.is

Auglýsing

læk

Instagram