Al­freð Gísla­son næsti þjálf­ari þýska karla­landsliðsins í hand­knatt­leik

For­seti þýska hand­knatt­leiks­sam­bands­ins greindi frá því í dag að Alfreð Gíslason muni taka við sem þjálfari þýska karla­landsliðsins í hand­knatt­leik.

Sú ákvörðun var tekin á stjórnarfundi að landsliðsþjálf­ar­inn Christian Prokop muni stíga til hliðar og mun Alfreð taka við liðinu í mars. Alfreð hefur verið laus allra mála síðan síðasta sumar en þá hætti hann störfum hjá þýska stórliðinu THW Kiel.

Þetta kom fram á vef Mbl

Auglýsing

læk

Instagram