Allir farþegar í tvær skimanir og sóttkví

Frá og með næsta miðvikudegi, 19. ágúst, fer hver einasti einstaklingur sem kemur hingað til lands í skimun fyrir COVID-19 á landamærunum. Eftir það fer fólk í sóttkví og þá í aðra sýnatöku eftir 4-6 daga. Þetta kom fram á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í dag.

,,Þessi ákvörðun er tekin í ljósi þess hvernig veiran hefur þróast á heimsvísu og hér innan lands. Tíðni smita vegna Covid-19 fer vaxandi í nágrannalöndum og um allan heim. Þá er enn verið að kljást við hópsýkingu sem upp hefur komið hér á landi án þess að vitað sé hvernig það afbrigði veirunnar barst inn í landið. Loks liggur fyrir að sóttvarnalæknir telur þessa leið áhrifaríkasta frá sóttvarnasjónarmiði,“ segir í tilkynningu á vefsíðu Stjórnarráðs Íslands

Þar kemur einnig fram að börn fædd 2005 og síðar verði áfram undanskilin þessari skimun.

,,Helsta breytingin sem leiðir af þessari ákvörðun er sú að allir farþegar, fyrir utan börn fædd 2005 og síðar, verða skimaðir við komu til landsins. Undanfarið hafa farþegar frá tilteknum ríkjum verið undanskildir. Í þeim ríkjum er faraldurinn að taka sig upp að nýju og erfitt hefur reynst að hafa eftirlit með því að farþegar hafi í raun dvalið 14 daga í viðkomandi landi. Þá ber öllum að fara í sýnatöku 2 til þess að tryggja betur að smit greinist hjá þeim sem eru nýlega smitaðir. Hingað til hefur sú krafa einungis átt við Íslendinga og þá sem hér eru búsettir eða koma til lengri tíma dvalar. Fyrstu 4-5 dagana þurfa viðkomandi að vera í sóttkví sem er öruggara og skýrara fyrirkomulag en svokölluð heimkomusmitgát sem mun þá heyra sögunni til.“

Einnig verða reglur um forskráningu farþegar hertar svo hægt sé að tryggja að nauðsynlegar upplýsingar liggi fyrir við komuna til landsins.

Auglýsing

læk

Instagram