Allir vinningsflokkar gengu út í EuroJackpot

Allir vinningsflokkar gengu út í EuroJackpot útdrætti vikunnar en tveir skiptu með sér 1. vinningi og hlýtur hvor um sig rúmlega 6,1 milljarð, annar miðinn var keyptur á Spáni en hinn í Þýskalandi.  Sjö miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og fær hver þeirra rúmlega 65 milljónir í vinning, fimm miðanna voru keyptir í Þýskalandi, einn í Noregi og einn á Spáni.

Það voru alls fjórtán sem skiptu 3. vinningi á milli sín og fær hver þeirra rúmlega 11,5 milljónir; tveir vinningar fóru til Danmerkur, þrír til Finnlands, sex til Þýskalands og einn til Eistlands, Noregs og Svíþjóðar. Fjórði vinningur skiptist á milli 111 miðaeigenda og þar af var einn á Íslandi og hlýtur hann um hálfa milljón, miðinn var keyptur í Appinu.

Einn var með 2. vinning í Jóker og hlýtur hann 100 þúsund í vinning, miðinn er í áskrift.

Auglýsing

læk

Instagram