Banaslys í Mosfellsbæ í gær

Pólskur karlmaður á sextugsaldri lést í gær þegar gólfplata hrundi í nýbyggingu í Sunnukrika í Mosfellsbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Maðurinn var að vinna við byggingu hússins ásamt fleiri vinnufélögum og slasaðist einnig annar maður þegar platan féll. Sá maður var fluttur alvarlega slasaður á slysadeild og er líðan hans eftir atvikum. Vinnueftirlitið og lögreglan rannsaka nú tildrög slyssins.

Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.

Auglýsing

læk

Instagram