Bifhjólaslys við Hnappavelli

Alvarlegt bifhjólaslys varð á veginum skammt vestan Stigár í Austur-Skaftafellssýslu, nærri Hnappavöllum, á öðrum tímanum í dag. Slysið var tilkynnt til neyðarlínu klukkan 13:36. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Ás­geir Er­lends­son upp­lýsinga­full­trúi Land­helgis­gæslunnar segir í samtali við Fréttablaðið að þyrla gæslunnar hafi verið kölluð út en hún síðan afturkölluð.

„Þyrlan var kölluð út en síðan reyndist ekki þörf á henni þannig út­kallið var aftur­kallað áður en hún fór í loftið,“ segir hann.

Lögreglan veitir ekki fleiri upplýsingar um málið að svo stöddu en ekki er vitað um ástand þess sem lenti í slysinu.

Auglýsing

læk

Instagram