Björgunarsveitarmenn grófu unglingsstúlku upp úr snjóflóði

Tvö stór snjóflóð féllu við Flateyri og það þriðja við Norðureyri í Súgandafirði í gærkvöldi. Þau ollu töluverðum skemmdum en enginn slasaðist alvarlega.

Björgunarsveitarmenn komu unglingsstúlku til bjargar sem lenti í öðru snjóflóðanna á Flateyri. Fréttastofa Rúv hefur upplýsingar um að björgunarsveitarmenn hafi verið snöggir á staðinn og grafið hana upp úr flóðinu. Systk­ini henn­ar, fimm ára gömul stelpa og níu ára gam­all dreng­ur, komust út úr hús­inu sem flóðið féll á ásamt móður sinni með því að klifra út um glugga, en herbergi unglingsstúlkunnar fylltist af snjó. Stúlkan er nú komin á sjúkrahúsið á Ísafirði og ekki talin vera með mjög alvarlega áverka.

Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri á Ísafirði, segir í samtali við Rúv  að fréttirnar af snjóflóðunum þremur í gærkvöldi veki upp gríðarlega sterkar tilfinningar, sérstaklega hjá Flateyringum.

„Hugur okkar er hjá Flateyringum og auðvitað erum við ótrúlega þakklát fyrir það að allir heilir á húfi.“ Hann hrósar björgunarsveitinni á Flateyri fyrir það þrekvirki sem unnið var þegar unglingsstúlku var bjargað úr snjóflóðinu.

Auglýsing

læk

Instagram