Bríet og Páll Óskar troða upp á Kótelettunni – Miðasala hefst í dag!

Fjölskylduhátíðin Kótelettan verður haldin í 11. sinn á Selfossi í sumar, dagana 9. til 11. júlí.

„Að vanda verður öllu til tjaldað enda finnum við fyrir mikilli eftir­væntingu í sam­fé­laginu,” segir Einar Björns­son, fram­kvæmdar­stjóri há­tíðarinnar, í til­kynningu.

Um er að ræða eina stærstu grill- og tónlistarveislu á Íslandi þar þar sem enginn ætti að láta sig vanta. Miða­sala hefst í dag á kotelettan.is en þar má einnig nálgast nánari upp­lýsingar og dag­skrá há­tíðarinnar í ár.

Tón­listar­fólkið Páll Óskar, Bríet, Love Guru, GDRN, Herra Hnetu­smjör munu troða upp á tón­list­ar­hátíðinni í ár, ásamt fleirum.

Auglýsing

læk

Instagram