Dagur íslenskrar tungu | Opnun ensk-íslenskrar veforðabókar

Á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, verður opnað fyrir aðgang að nýrri ensk-íslenskri orðabók á wordreference.com. Orðabókin var búin til af íslenskum sjálfboðaliðum í gegnum lýðvirkjun (e. crowdsourcing) og er því bein afurð almenningsþáttöku. Hvert orð og frasi var þýtt og yfirfarið af sjálfboðaliðum en þökk sé þeirra þrotlausu vinnu hefur ferlið, frá upphafi til birtingar, ekki tekið nema tæpt ár.

Verkefnið er afar þarft, en hingað til hefur engin góð og ókeypis ensk-íslensk orðabók verið aðgengileg almenningi.

Stefnt er að opnun íslensk-ensk hluta orðabókarinnar á degi íslenskrar tungu 2022.

Sigurður Hermannsson, málfræðingur og forsprakki orðabókarinnar, segir frá tilurð hennar auk þess sem gestum býðst að taka þátt í orðaleikjum og grípa í spil á Borgarbókasafninu Grófinni, þriðjudaginn 16.nóvember kl. 16:30 – 18:30.

Facebookviðburður

Heimasíða Borgarbókasafnsins

Auglýsing

læk

Instagram