Damon Albarn með tónleika í Hörpu

Söngvarinn, lagahöfundurinn og tónskáldið Damon Albarn flytur nýja verkið sitt The Nearer the Fountain, More Pure the Stream Flows í heild sinni í Eldborg, Hörpu 12. júní 2020.

Damon hefur verið tíður gestur á Íslandi í tæplega þrjá áratugi og hefur á þessum tíma verið innblásinn af náttúru þess og landslagi. Nýja verkið hans er afleiðing af þessari ást hans á Íslandi og mun hann flytja þetta mjög svo persónulega verk með hópi tónlistarmanna og umgjörðin byggir á sérhönnuðu sjónlistaverki. Tónleikarnir eru hans fyrstu á Íslandi í 23 ár.

The Nearer the Fountain, More Pure the Stream Flows var skrifað og samið að fullu á Íslandi og kemur nafnið frá ljóðinu Love and Memory eftir John Clare.

– Miðasala hefst 31. janúar kl. 12

– Miðaverð frá 7.990 kr.

Auglýsing

læk

Instagram