Einhverjar umferðartafir á Miklubraut í dag

,,Umferðartafir á Miklubraut í austur í dag vegna viðhalds á strætórein móts við Klambratún.

Endurnýja þarf hið rauða malbik í strætórein Miklubrautar móts við Klambratún (sunnan megin) og er það áætlað þriðjudag 25.ágúst.

Fræsa þarf kaflann og malbika. Þetta útheimtir lokun strætóreinar auk einnar akreinar Miklubrautar til austurs (sjá mynd að neðan).

Áætlun verktakans gerir ráð fyrir að loka strætórein kl 8:00 og loka svo annarri akrein Miklubrautar um 9:00. Malbikun ætti að vera lokið seinnipart dags eða um 16:00.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu.

Auglýsing

læk

Instagram