Einn fékk hinn al-íslenska þriðja vinning og hlýtur rúma 1,7 milljón

Enginn var með allar tölur réttar í Víkingalottóútdrætti vikunnar og flyst því upphæð 1. vinnings, sem nam rúmlega 2,7 milljörðum króna, yfir til næstu viku.  Einn var með 2. vinning og var sá miði keyptur í Noregi og fær eigandi hans rúmlega 38,5 milljónir króna.  Hinn al-íslenski 3. vinningur gekk einnig út en hann var upp á rúma 1,7 milljón, miðinn var keyptur á heimasíðunni lotto.is.

Fjórir voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund kall í vinning. Miðarnir voru keyptir á eftirtöldum stöðum: Krambúð Firði í Hafnarfirði, Hagkaup við Eiðistorg á Seltjarnarnesi, Olís við Ánanaust í Reykjavík og einn miðinn er í áskrift.

Auglýsing

læk

Instagram