Einn var með hinn al-íslenska 3. vinning og hlýtur rúmar 4,6 milljónir króna

Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni í Vikingalottó en heppinn Finni var einn með 2. vinning og hlýtur hann rúmar 75 milljónir króna í sinn hlut.

Heppinn miðahafi var einn með hinn al-íslenska 3. vinning og hlýtur hann rúmar 4,6 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var í áskrift.

Tveir voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jóker og hljóta þeir 100 þúsund krónur hvor. Annar miðinn var keyptur í Kvikk á Vesturlandsvegi í Reykjavík og hinn miðinn var í áskrift.

Auglýsing

læk

Instagram