Ellen Kristjánsdóttir og KK fluttu saman lag í kyrrðarstundinni

Sýnt var frá kyrrðarstund með Biskupi Íslands á Rúv í dag.

Í þessum þætti, sem tekinn var upp í Háskóla Íslands, fluttu hugleiðingar þau Jón Atli Benediktsson rektor HÍ, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Jón Páll Hreinsson bæjarstjóri Bolungarvíkurkaupstaðar og Joanna Marcinkowska sérfræðingur á mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar sem verður með hugleiðingu á pólsku. Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands flutti ávarp í upphafi og leiddi stundina.

Tónlistarfólkið Ellen Kristjánsdóttir og KK fluttu saman þetta fallega lag.

Auglýsing

læk

Instagram