today-is-a-good-day

Fara yfir skipulag og framkvæmd bólusetninga á upplýsingafundi dagsins

Upplýsingafundur Almannavarna og Embættis landlæknis fer fram í dag klukkan 11:03.

Á fundinum fer Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, yfir stöðu mála varðandi framgang Covid-19 hér á landi. Með honum á fundinum verður Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, smitsjúkdómalæknir, og mun hún fara yfir skipulag og framkvæmd bólusetningar á Íslandi.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn stýrir fundinum, sem verður í beinni útsendingu á Vísi og í sjónvarpinu á Stöð 2 Vísi.

Auglýsing

læk

Instagram