Auglýsing

Forsetahjónin bjóða í síðustu heimsóknina: Guðni og frú stimpla sig út

Forsetasetrið að Bessastöðum verður opið almenningi laugardaginn 8. júní í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldis á Íslandi. Forsetahjónin taka á móti gestum og býðst fólki að skoða staðinn milli klukkan 13:00 og 17:00.

Þetta verður í síðasta sinn sem Bessastaðir eru opnir almenningi í tíð fráfarandi forseta. Síðan hann tók við embætti 2016 hefur opið hús á Bessastöðum orðið að reglulegum viðburði, tvisvar til þrisvar á ári, í því skyni að gefa almenningi öllum kost á að kynnast þjóðhöfðingjasetrinu.

Bessastaðastofa byggð á 18. öld

Bessastaðir eiga sér merka sögu. Auk Bessastaðastofu, sem byggð var á 18. öld, munu gestir geta skoðað móttökusal og bókhlöðu forsetasetursins sem eru síðari tíma viðbyggingar. Í húsinu má meðal annars sjá úrval myndlistar eftir íslenska listamenn og sýnishorn gjafa sem borist hafa forsetum lýðveldisins.

Þá verða til sýnis dæmi um mannvistarleifar sem fundist hafa við fornleifarannsóknir og veita innsýn í búsetu á Bessastöðum allt frá landnámstíð. Að þessu sinni verður Bessastaðakirkja lokuð vegna framkvæmda og fornleifauppgraftar. Eins verður fornleifakjallarinn lokaður.

Packard-inn í hlaðinu…

Í hlaði Bessastaðastofu verður fyrsti forsetabíllinn, Packard bifreið Sveins Björnssonar, til sýnis en bifreiðin er árgerð 1942. Ef veður leyfir hyggst einnig Kór Vídalínskirkju syngja lag til heiðurs forseta þegar húsið verður opnað gestum kl. 13:00.

Starfsmenn embættis forseta og aðstoðarmenn veita upplýsingar um staðinn og verða gestum til aðstoðar.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing