Íslenskukennsla í fjölmenningarsamfélagi er yfirskrift málþings sem fram fer í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í dag frá kl. 9:30 – 16:00. Á meðal gesta eru Elíza Reid forsetafrú og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Boðið er upp á fjölmörg áhugaverð erindi en málþingið er líka sent út í streymi á Facebooksíðu Tungumálatöfra.
Tilgangur málþingsins er að skoða hvernig efla megi aðgengi að íslenskukennslu á netinu bæði fyrir íslensk börn sem búa í útlöndum og fyrir börn sem búa á Íslandi og eiga annað móðurmál en íslensku. Tungumálatöfrar sem er áhugafélag um íslenskukennslu og fjöltyngi standa að málþinginu í samstarfi við Prófessor embætti Jóns Sigurðssonar. Félagið vinnur nú að þróun vefskóla sem byggir á aðferðum sem notaðar hafa verið á sumarnámskeiði félagsins undanfarin fimm ár þar sem 5-14 ára börnum og unglingum er boðið upp á íslensku örvun í gegnum listsköpun og leik.
Meðal framsögumanna á málþinginu eru Renata Emilsson Peskova, aðjúnkt við Háskóla Íslands, Jón Páll Hreinsson bæjarstjóri í Bolungarvík, Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðiprófessor og Donata Bukowska sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Boðið verður upp á pallborðsumræður um nýsköpun í námsgagnagerð þar sem skoðað verður sérstaklega hvernig standa má betur að íslenskukennslu. Eliza Reid forsetafrú opnar málþingið og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lokar því.
„ slenskukennsla fyrir börn með annað móðurmál hefur aldrei verið mikilvægara viðfangsefni en einmitt nú. Ísland er ungt fjölmenningarsamfélag og tungumálið okkar er lykillinn. Við vonum að málþingið geti orðið vendipunktur fyrir umræðuna um íslenskukennslu fyrir öll þau börn sem búa hér á landi, hvaðan sem þau koma,“ segir Alexandra Ýr van Erven, málþingsstýra.
Greint verður frá viljayfirlýsingu um samstarf á milli Tungumálatöfra og Fjölmenningarseturs og fjallað verður um möguleikana á að bjóða upp á aðferðir tungumálatöfra víðar á landinu samhliða því sem vefskóli verður þróaður.
Streymi frá málþinginu fer fram hér
Dagskrá málþingsins hér