Helgi, Vigdís og Sigurbjartur tóku saman Hljómalagið Lífsgleði

Helgi Björns fékk þau Vigdísi Hafliðadóttur söngkonu hljómsveitarinnar Flott og Sigurbjart Sturlu leikara, einnig þekktur sem Sturla Atlas, til að taka með sér Hljómalagið Lífsgleði í þættinum Það er komin Helgi, síðasta laugardagskvöld.
Lífsgleði hefur mikið verið spilað undanfarið í flutningi Moses Hightower sem endurgerðu það fyrir krúttlegu voffaauglýsingu Símans í sumar.
Helgi og félagar verða að sjálfsögðu í hlöðunni næsta laugardagskvöld klukkan 20 í beinni útsendingu í Sjónvarpi Símans, á mbl.is og á K100.

Auglýsing

læk

Instagram