Heppinn miðaeigandi vann rúmar 79 milljónir

Það var stálheppinn viðskiptavinur sem lagði leið sína í N1 við Bíldshöfða í Reykjavík og keypti sér 10 raða lottómiða.  Það reyndist svo sannarlega vera lukkumiði því að hann færir eiganda sínum vinning upp á 79.441.220 krónur.

Fjórir skiptu hins vegar á milli sín bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmlega 227 þúsund kall í vasann, tveir miðanna voru keyptir í Reykjanesbæ, annar í Ungo við Hafnargötu en hinn í Olís við Vatnsnesveg.  Einn var keyptur í Appinu og einn á lotto.is

Auglýsing

læk

Instagram