today-is-a-good-day

Hlaut alvarlega áverka eftir líkamsárás – Lögreglan leitar að árásarmanninum

Ráðist var á mann í Vestmannaeyjum síðastliðna nótt og leitar lögreglan að árásarmanninum. Í tilkynningu frá lögreglunni í Vestmannaeyjum segir:

„Sl. nótt var framin alvarleg líkamsárás í Vestmannaeyjum en ráðist var á mann á fertugsaldri með einhverju áhaldi og hlaut hann alvarlega áverka af árásinni.

Sá er ráðist var á kannaðist ekki við árásarmanninn og sagði hann hafa verið með andlitið hulið, þannig að hann þekkti hann ekki.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu þá er árásarmaðurinn um 190 cm á hæð, grannvaxinn og líklega dökklæddur.

Árásin átti sér stað á götunni sunnan við vestustu raðhúsalengjuna í Áshamri á milli kl. 02:00 og 02:15 og eru þeir sem urðu varir við árásina eða grunsamlegar mannaferðir í bænum sl. nótt beðnir að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í síma 444 2091 eða á facebooksíðu lögreglu. Einnig er hægt að hafa samband með tölvupósti í póstfangið vestmannaeyjar@logreglan.is.“

Auglýsing

læk

Instagram